| Miðvikudagur 24. janúar 2001 |

Stuðningur við lista- og menningarstarfsemi

Í fjárlögum 2001 er, eins og undanfarin ár, fjárveitingaliðurinn “Listir, framlög”. Að því leyti sem skipting liðarins er ekki ákveðin í fjárlögum ráðstafar menntamálaráðuneytið honum á grundvelli umsókna til ýmissa verkefna á sviði lista og annarrar menningarstarfsemi. Árið 2001 er gert ráð fyrir að ákvörðun um framlög af þessum lið verði tekin í febrúar, maí, september og nóvember með hliðsjón af umsóknum sem fyrir liggja hverju sinni við upphaf þessara mánaða. Nauðsynlegt kann þó að reynast að víkja frá þessum tímamörkum.
Eyðublöð fyrir umsóknir um styrk af framangreindum fjárlagalið fást í afgreiðslu menntamálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4. Einnig er unnt að nálgast umsóknareyðublöð á heimasíðu ráðuneytisins, veffang www.mrn.stjr.is

Árið 2001 verður umsóknarfrestur sem hér segir:

1. febrúar
1. maí
1. september
1. nóvember.

Menntamálaráðuneytið,
10. janúar 2001

Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar - Glerárgata 36 - 600 Akureyri
Sími: 460 5700 - Fax: 463 0998 - Netfang: - Heimasíða: afe.is
Síðast uppfært: 11. December 2001 kl. 00:58 GMT