Fréttir

Almennt | 21. nóvember 2003 - kl. 08:22

Þráðlausir Hríseyingar
Allir íbúar nettengdir

Ragnar Jörundsson, sveitarstjóri Hríseyjarhrepps, segir þetta gríðarlegt byggðarmál fyrir hreppinn. "Viðtökur íbúa Hríseyjar hafa farið fram úr björtustu vonum og lítur út fyrir að fólk muni nýta sér þessa þjónustu," segir Haraldur Ingi Haraldsson, verkefnisstjóri fyrir Hríseyjarhrepp, og bætir við að íbúar muni eiga auðveldara en áður með að sinna fjarnámi eða fjarvinnu.

Þráðlausi búnaðurinn virkar þannig að þegar Hríseyingar fara á Netið eru send boð um gervihnött til Ítalíu og þaðan aftur til Íslands um sæstreng. Tekur þetta aðeins nokkur sekúndubrot, segir í tilkynningu frá aðstandendum verkefnisins. Nettengingin hefur flutningsgetu allt að 2 MB á sekúndu.

Höf.

Póstlisti

Skráðu þig í póstlistann okkar

Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar - Glerárgata 36 - 600 Akureyri
Sími: 460 5700 - Fax: 463 0998 - Netfang: - Heimasíða: afe.is