Fréttir

Almennt | 1. mars 2005 - kl. 15:31

Styrkir til atvinnumála kvenna
Árið 2005 er fjárveiting styrkja til atvinnumála kvenna kr 25 milljónir

Tilgangur styrkveitinga er einkum:

• Vinnumarkaðsaðgerðir til að draga úr atvinnuleysi

meðal kvenna

• Efla atvinnulíf í dreifbýli og auka fjölbreytni í atvinnulífi

• Auðvelda aðgang kvenna að fjármagni

. Í umsókn verður að koma fram

ávinningur af slíku samstarfi.

Mat umsókna

Umsóknir eru metnar af ráðgjafahópi félagsmálaráðherra.

Matið byggist eingöngu á þeim gögnum sem umsækjandi

leggur fram og er þá miðað við m.a.:

• Er verkefnið kvennaverkefni, í a.m.k. 50% eigu kvenna

og stýrt af konum?

• Felur verkefnið í sér nýjung sem getur verið atvinnus

kapandi?

• Eru markmið og verkáætlun skýr?

• Eru markaðsáætlanir skýrar og raunhæfar?

• Eru kostnaðar- og tekjuáætlanir trúverðugar?

• Er verkefnið arðbært?

• Hversu mikilvægur er styrkurinn til framgangs verkefnisins?

Veittir eru stofnstyrkir til tækja- og vélakaupa, þróunar og

markaðssetningar.

Ekki eru veittir styrkir til verkefna þar sem styrkveiting gæti

skekkt samkeppnisstöðu gagnvart aðila í hliðstæðum atvinnurekstri

svæðisbundið.

Lögð er áhersla á nýsköpun og hún skilgreind út frá samkeppnisforsendum.

Vinnumálastofnun sér um útborgun styrkja og hefur eftirlit

með ráðstöfun þeirra. Eingöngu verður tekið við umsóknum

á rafrænu formi.

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Vinnumálastofnunar

www.vinnumalastofnun.is.

Umsóknir

• Umsóknum skal skilað á rafrænu formi á þar til gerð

um eyðublöðum sem finna má á heimasíðu Vinnumálastofnunar

www.vinnumalastofnun.is

Upplýsingar veitir Margrét Kr. Gunnarsdóttir, Vinnumálastofnun

simi 515 4800. Atvinnu- og iðnráðgjafar

atvinnuþróunarfélaga á landsbyggðinni veita ráðgjöf

og upplýsingar við gerð umsókna. Einnig er bent á

þjónustu Impru nýsköpunarmiðstöðvar á sviði hand

leiðslu til frumkvöðla og fyrirtækja. Sjá nánar heima

síðu Impru á slóðinni www.impra.is.

Umsóknarfrestur til 28. mars 2005

• Öllum umsóknum verður svarað skriflega.

• Mat umsókna getur tekið allt að 2 mánuði.

• Sé umbeðnum gögnum ekki skilað fyrir auglýstan um

sóknarfrest og umsókn er ófullnægjandi, áskilurVinnu

málastofnun og ráðgjafahópurinn sér rétt til að hafna

umsóknum á þeim forsendum.

Höf.

Póstlisti

Skráðu þig í póstlistann okkar

Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar - Borgir við Norðurslóð - 600 Akureyri
Sími: 460 5700 - Fax: 460 5709 - Netfang: - Heimasíða: afe.is