Matvælasýning Norðurlands, Matur-inn 2005, verður haldinn í Verkmenntaskólanum á Akureyri laugardaginn 12. og sunnudaginn 13. mars.
Á sýningunni munu matvælaframleiðendur, veitingahús og aðrir aðilar innan matvælageirans kynna sig og sínar vörur ásamt því að keppt verður um titilinn Matreiðslumaður ársins 2005.
Þetta er í annað sinn sem sýningin er haldin og eru öll helstu matvælafyrirtæki á Norðurlandi þátttakendur ásamt fjölda aðila sem þjónusta matvælaiðnaðinn.
Allir velkomnir – aðgangur ókeypis
Enn eru til sýningabásar og eru áhugasamir beðnir um að hafa samband við Friðrik V. Karlsson sýningastjóra í síma 461-5775 eða með tölvupósti á .