Fréttir

Almennt | 23. ágúst 2005 - kl. 15:44

Nýr verkefnastjóri Vaxtarsamnings Eyjafjarðar

Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar (AFE) er framkvæmdaraðili samningsins og hefur Halldór Ragnar Gíslason sinnt hlutverki verkefnisstjóra samningsins undanfarið ár, en hann mun nú sinna sértækum verkefnum hjá AFE. Í stað Halldórs hefur AFE fengið Bjarna Jónasson til að verkstýra Vaxtarsamningi Eyjafjarðar. Bjarni hefur fjölbreytta reynslu sem stjórnandi og ráðgjafi, og hefur um skeið stýrt vinnu við einn af fjórum klösum Vaxtarsamningsins, heilsuklasa og mun hann halda þeirri vinnu áfram.

Höf.

Póstlisti

Skráðu þig í póstlistann okkar

Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar - Skipagata 9 - 600 Akureyri
Sími: 460 5700 - Fax: 460 5709 - Netfang: - Heimasíða: afe.is