Fréttir

Almennt | 26. ágúst 2005 - kl. 14:55

Kynning á rannsóknar- og tækniþróunarsjóði Rannís
Haldin að Borgum 31. ágúst

Kynning á umsóknar- og matsferli rannsóknasjóðs og tækniþróunarsjóðs Rannís.

Umsóknarfrestur í Rannsóknasjóð er 1. október en 15. september í tækniþróunarsjóð.

Starfsmenn Rannís kynna sjóðina, umsóknareyðublöðin og matsferli.

Kynningin verður í fundarherbergi 262 á 2. hæð Borga 31. ágúst frá kl. 14:00 – 16:00.

Kynning á tækniþróunarsjóði fer fram frá 14:00 – 15:00

Kynning á rannsóknasjóði fer fram frá 15:00 – 16:00

Sjá nánar á www.rannis.is

Við hvetjum fyrirtæki og stofnanir á Norðurlandi til að kynna sér sjóðina og nýta þau tækifæri sem í þeim felast.

Höf.

Póstlisti

Skráðu þig í póstlistann okkar

Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar - Skipagata 9 - 600 Akureyri
Sími: 460 5700 - Fax: 460 5709 - Netfang: - Heimasíða: afe.is