3.2.2
Ađgangsnet Landssímans
Aðgangsnet
Landssímans er byggt upp af tveimur megin þáttum;
koparkerfinu sem sett var upp fyrir hefðbundna símaþjónustu
og breiðbandskerfinu sem verið er að setja upp til að
mæta kröfum framtíðarinnar. Koparkerfið
er byggt upp af stofnstrengjum með allt að 1000 línum
sem lagðir eru út í greinikassa þar sem
strengir með færri línum taka við. Strengirnir
liggja að lokum inn í götukassa eða fjölbýlishús
þaðan sem einstaka línur liggja til íbúðanna.
Þetta er sýnt til glöggvunar á myndinni
hér að neðan.
Mynd
3.3 Koparkerfi Landssímans í þéttbýli.
Breiðbandskerfið
er byggt upp til leysa koparkerfið af hólmi þegar
fram líða stundir og koparkerfið mun ekki geta annað
fjarskiptaþörfum almennings og fyrirtækja. Breiðbandskerfið
byggir á því að lagðir eru ljósleiðarar
frá símstöðvum út í götuskápa.
Í götuskáp er greiningarbúnaður sem
breytir ljósi yfir í rafmerki og er kóax strengur
notaður seinasta spölinn til notenda, allt að 300 m.
Jafnframt er í undirbúningi að leggja ljósleiðara
frá götuskápum og alla leið heim til notenda
í einbýlis og raðhúsum. Þegar eru
lagðir ljósleiðarar í fjölbýlishús
og til stærri fyrirtækja. Fyrirkomulag breiðbandskerfisins
íslenska er nefnt FTTC (Fibre To The Curb) og er sýnt
á mynd 3.4 á næstu síðu.
Mynd
3.4 Fyrirkomulag breiðbandskerfis Landssímans.
Í
gegnum tíðina hafa símafyrirtæki lagt meira
fé í aðgangsnetin en nokkurn annan lið. Því
skiptir miklu að geta nýtt fjárfestinguna sem
lengst. Hér kemur DSL tæknin til hjálpar því
með henni er unnt að flytja breiðbandsmerki á
koparkerfi með allt að 8 Mb/s hraða heim til notenda.
Þessi lausn mun væntanlega duga nokkuð fram á
fyrsta tug nýrrar aldar en þá verður óhjákvæmilegt
annað en að flytja merkin með ljósleiðara
mestan hluta leiðarinnar. Þegar er komin fram lausn sem
hentar vel fyrir núverandi fyrirkomulagi breiðbands Landssímans
en hún er nefnd VDSL. Ljósleiðari ber merkin frá
símstöð til götuskáps þar sem
VDSL búnaðurinn breytir þeim í rafmerki
og notast við koparlínu seinasta hluta leiðarinnar.
Með þessu móti er hægt að flytja allt
að 60 Mb/s heim til notenda.
|