Aukaúthlutun úr sóknaráætlun Norðurlands eystra fyrir árið 2020

Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra auglýsa eftir hugmyndum að áhersluverkefnum fyrir árið 2020. Um er að ræða viðbótarfjármagn af hálfu ríkisins sem veitt er í sóknaráætlanir landshluta, sem og aukið fjármagn samtakanna, vegna áhrifa Covid-19 á samfélagið. Alls eru um 42 m.kr. í pottinum. 

Áhersluverkefni eru samningsbundin verkefni sem hafa beina skírskotun til sóknaráætlunar Norðurlands eystra og styðja við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Óskað er eftir umsóknum um atvinnuskapandi verkefni á sviði nýsköpunar-, atvinnuþróunar-, menningar- og umhverfismála sem geta hafist sem fyrst. Áhersluverkefnin skulu samþykkt af stjórn samtakanna. 

Umsækjendur sem ekki fengu styrk úr sóknaráætlun fyrr á árinu, eða telja þörf á auknu fjármagni í verkefni, eru hvattir til að endurnýja umsóknir sínar og staðfæra að núverandi aðstæðum. Yfirlit yfir áhersluverkefni Eyþings/SSNE má finna hér.  

 

Frekari upplýsingar veita:

Ari Páll Pálsson á netfang:                    sími 464 0416

Baldvin Valdemarsson á netfang:              sími 460 5701

Vigdís Rún Jónsdóttir á netfang:           sími 464-9935

 Hægt er að skila inn umsóknum til og með 30. apríl nk. á netfangið [email protected] og má nálgast umsóknareyðublaðið hér.