Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar afgreiddi á fundi sínum 7. maí s.l. til kynningar drög að skipulagstillögu og umhverfisskýrslu vegna breytinga á svæðisskipulagi. Tillagan verður síðan send sveitarstjórnum til staðfestingar að lokinni kynningu sem stendur til út júní.
Athugasemdum má koma á framfæri með tölvupósti á [email protected] eða senda í pósti til Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, v. svæðisskipulags, Hafnarstræti 91, 600 Akureyri fyrir lok júní 2018. Drög að skýrslu um breytingar vegna flutningslína raforku má lesa hér. Umhverfisskýrsluna má lesa hér.