Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar
Það er komin SPAM-sía á bloggið. Núna geta róbótar ekki dælt inn efni nema kunna eitthvað í íslensku og stærðfræði.

 

Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar   
Vaxtarsamningur Eyjafjarðar endurnýjaður með breyttum formerkjum til næstu tveggja ára
Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar (AFE) og iðnaðarráðuneytið undirrituðu í dag samning um Vaxtarsamning Eyjafjarðar sem gildir fyrir árin 2012 og 2013. Til samningsins er varið 75 milljónum króna á samningstímanum úr ríkissjóði. Enginn Vaxtarsamningur tók gildi fyrir árið 2011, en með nýjum samningi verður ætluðum fjármunum þess árs varið til uppbyggingar á svæðinu og leggst fjárhæðin við framlög ráðuneytisins 2012 og 2013. Þannig verða 37,5 milljónir króna til úthlutunar á hvoru ári. Markmið samningsins er að efla nýsköpun á starfssvæði AFE, þétta innviði atvinnulífsins á svæðinu og auka hagvöxt með virku samstarfi fyrirtækja svæðisins, háskóla, sveitarfélaga og ríkisins.
:: skoða
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson ráðinn framkvæmdastjóri AFE
Stjórn Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar (AFE) hefur ráðið Þorvald Lúðvík Sigurjónsson sem nýjan framkvæmdastjóra félagsins frá 11. janúar n.k. en fráfarandi framkvæmdastjóri lét af störfum nú um áramót.
:: skoða
Nýtt Eldgos á Norðurlandi
Volcanic Energy væntanlegt á markað
Heimamenn á Akureyri hafa hafið framleiðslu á vodkagosinu Volcanic Energy. Fyrirtækið Eldfjallabrugg stendur að framleiðslunni og er meginmarkmið þess að vera leiðandi á sviði alco-pops drykkja, sem eru einnig nefndir gosbjór.
:: skoða
Opinn fundur SA um atvinnumál
Í fyrramálið kl 8:30 í Hofi
Samtök atvinnulífsins efna til opins fundar á Akureyri, fimmtudaginn 24. nóvember, um stöðu atvinnu- og efnahagsmála. Fundurinn fer fram í Hofi kl. 8.30-10 og eru allir velkomnir en nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef SA.
:: skoða
Haustfundur AFE 2011
Atvinnumál og breytt landslag í brennidepli
Samræðuvettvangur sveitarstjórnarfólks í Eyjafirði. Haldinn nk miðvikudag í Hofi kl 15.
:: skoða
Deila
Vaxtarsamningur Eyjafjarðar
Upplýsingar um Evrópumál
 
 
Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar - Skipagata 9 - 3. hæð - 600 Akureyri
Sími: 460 5700 - Fax: 460 5709 - Netfang: - Heimasíða: afe.is