Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar 4. Fundur.
Stjórn félagsins kom saman til fundar sunnudaginn 29. nóvember 1998 á skrifstofu Ráðgarðs hf., Akureyri.
Teknar voru til umfjöllunar umsóknir um starf framkvæmdastjóra. Samþykkt var að ganga til viðræðna við Hólmar Svansson í starf framkvæmdastjóra, að fenginni umsögn Ráðgarðs hf., en fundinn sat Jón Birgir Guðmundsson frá Ráðgarði hf.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið.
Rögnvaldur S. Friðbjörnsson
Bjarni Kristjánsson
H. Ingólfsson
Hákon Hákonarson
Sigurður J. Sigurðsson