59. fundur
Fundur stjórnar AFE var haldinn mánudaginn 8. mars kl. 16:00 að Glerárgötu 36.
Mættir stjórnarmenn:
Árni V. Friðriksson
Jóhann Ingólfsson
Oktavía Jóhannesdóttir
Stefanía Traustadóttir
Valur Knútsson
Starfsmenn:
Magnús Þór Ásgeirsson, framkvæmdastjóri AFE
Halldór Ragnar Gíslason, verkefnastjóri AFE
1. Fundargerð síðasta stjórnarfundar
Samþykkt samhljóða.
2. Rekstraryfirlit
Rekstraryfirlit fyrir fyrstu tvo mánuði ársins sett fram og kynnt af framkvæmdastjóra. Umræður um málið.
3. Staða helstu verkefna
Staða helstu verkefna kynnt af stjórnarformanni og framkvæmdastjóra. Umræður.
4. Önnur mál
Ekkert var tekið fyrir undir liðnum önnur mál.
Næsti fundur ákveðinn 7. apríl kl. 16:00.
Fleira ekki rætt og fundi slitið kl 17:55.
Fundarritari: HRG