47. fundur
Fundur stjórnar AFE var haldinn fimmtudaginn 13. mars kl. 16:00 að Glerárgötu 36 í fundarherbergi 3 hæð.
Mættir stjórnarmenn:
Valur Knútsson stjórnarformaður
Aðalheiður Eiríksdóttir
Oktavía Jóhannesdóttir
Valdimar Bragason
Starfsmenn AFE:
Hólmar Svansson framkvæmdastjóri og Magnús Þór Ásgeirsson forstöðumaður Þróunar- og markaðssviðs.
1. Fundargerð síðasta stjórnarfundar
Samþykkt samhljóða.
2. Undirbúningur samráðsfundar eigenda föstudaginn 14. mars.
Framkvæmdastjóri fór yfir kynningu sem verður farið yfir.
Umræður um ferðamálasvið AFE
Ákveðið að skipta fundinum upp í framtíðar rekstur AFE annarsvegar og hugmynda um markaðsskrifstofu Norðurlands hinsvegar.
3. Önnur mál:
Styrkveitingar
Umræður gáfu ekki tilefni til bókunar.
Stefnt að næsta fundi mánudaginn 24. mars
Fleira ekki rætt og fundi slitið kl 17:11
Fundarritari: MÁ